
TTT starf Selfosskirkju
TTT stendur fyrir Tíu Til Tólf ára og starfið er ætlað börnum í 5. – 7. Bekk. Í TTT er margt skemmtilegt brallað, við förum skemmtilega leiki, syngjum og skoðum kirkjuna í krók og kima. Auk þess er stefnan tekin á TTT mót í Vatnaskógi eftir áramót.
Í starfinu er einnig fræðsla þar sem við skoðum hvernig megi nota boðskap biblíunnar við að takast á við áskoranir daglegs lífs.
Fundir eru alla þriðjudaga frá klukkan 17:00-18:30.
Starfið er börnunum að kostnaðarlausu. Þátttaka er ekki bundin við ákveðið upphaf og öllum börnum er velkomið að byrja hvenær sem er.
Umsjón með barnastarfi Selfosskirkju hefur Sjöfn Þórarinsdóttir. Hún er menntaður tómstundafræðingur og sleit sjálf barnaskónum í barnastarfi kirkjunnar.
Áherslan í barnastarfi kirkjunnar er að hafa starfið skemmtilegt, fræðandi og að það efli krakkanna. Jafnframt er lagt upp með að mæta börnunum þar sem þau eru og leyfa þeim að njóta sín.
Það eru öll börn velkomin í barnastarf Selfosskirkju.
Skráning í TTT-starf Selfosskirkju er hér: TTT starf Selfosskirkju (google.com)