
Selfosskirkja býður öll börn í 1. – 4 . bekk velkomin í 6-9 ára starf kirkjunnar alla þriðjudaga frá kl. 14:00-15:30. Fyrsti fundur vetrarins er þriðjudaginn 31. ágúst.
Í 6-9 ára starfinu er margt skemmtilegt brallað. Við föndrum, förum marga skemmtilega í leiki, syngjum saman og skoðum kirkjuna í krók og kima. Í starfinu er einnig fræðsla þar sem við skoðum hvernig nýta megi boðskap Biblíunnar við að takast á við áskoranir daglegs lífs.
Starfið er börnunum að kostnaðarlausu.
Þátttaka er ekki bundin við ákveðið upphaf eða endi og öllum börnum er velkomið að byrja hvenær sem er.
Skráningarform í 6-9 ára starfið haust 2021 er að finna hér: https://forms.gle/nQXMUzmZgdvfndXa7
Sjöfn æskulýðsfulltrúi Selfosskirkju heldur utanum starfið.
Netfangið hennar er sjofn@selfosskirkja.is.